Skilmálar

Almennt

Það er einfalt og þægilegt að versla hjá okkur. Þú velur vöru og stærð, setur í körfu og velur greiðslufyrirkomulag. Síðan er pöntunin afgreidd. Í kjölfar greiðslu færðu kvittun fyrir vörukaupunum í tölvupósti og þar með er kominn á samningur. Sé vara uppseld verður haft samband við þig við fyrsta hentugleika og þér boðin önnur vara eða endurgreiðsla. Við áskiljum okkur rétt til að afgreiða ekki pantanir, t.d. ef vara er rangt verðmerkt eða uppseld, og til að breyta verðum og vöruframboði. Viðskiptavinur fær þá endurgreitt eða getur valið sér aðra vöru.

Upplýsingar um seljanda

Seljandi er Hálogaland ehf., kt. 440208-0530, vsk nr. 106765. Netfang: mfitness@mfitness.is.

Verð

Öll verð í netversluninni eru í íslenskum krónum með virðisaukaskatti og birt með fyrirvara um innsláttarvillur. Verð í netverslun getur breyst án fyrirvara t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða rangrar skráningar.

Greiðslumöguleikar

Boðið er upp á að greiða með greiðslukortum frá Visa, Mastercard, JCB, Maestro, Union Pay, Visa electron og fara greiðslur í gegnum Valitor. Einnig er boðið upp á að greitt sé með Netgíró en þá þarf að skrá sig á heimasíðu viðkomandi aðila, www.netgiro.is, samkvæmt skilmálum þeirra.

Sending vöru

Allar vörur hjá okkur eru afgreiddar samdægurs ef pöntun berst fyrir kl. 12:00 virka daga. Ef pantað er eftir þann tíma, um helgi eða á hátíðardegi er pöntunin afgreidd næsta virka dag.

Vörur eru sendar með Póstinum og fara verð á sendingum eftir gildandi verðskrá þeirra hverju sinni.

Ávallt er hægt að sækja í verslun okkar að Stórhöfða 15, 110 Reykjavík.

Ef senda á vöruna erlendis þá greiðir kaupandi sendingarkostnað. Tollafgreiðsla vörunnar erlendis er á ábyrgð kaupanda.

Skil eða skipti á vöru

Viðskiptavinir okkar hafa 14 daga frá því samningur kemst á til að hætta við kaup á ógallaðri vöru að því tilskildu að þeir hafi ekki notað vöruna, varan sé heil og í upprunalegu ástandi og verðmiðar áfastir. Framvísa þarf kvittun við skil eða skipti á vöru. Ef viðskiptavinur vill ekki skipta vörunni fyrir aðra vöru er gefin út inneignarnóta sem hægt er að nota í verslun og vefverslun.

Við skil og skipti er best að koma í verslun okkar að Stórhöfða 15, 110 Reykjavík. Ef það hentar ekki er best að senda á:
M fitness
Stórhöfða 15
110 Reykjavík
Passa þarf að hafa miða með skilavörunni sem stendur á:

  1. Fullt nafn
  2. Heimilisfang svo varan skili sér rétt.
  3. Netfang og sími.
  4. Greiðslukvittun sem fylgdi upphaflegum kaupum.
  5. Ástæða fyrir skilum.
  6. Hvaða vöru og í hvaða stærð viðkomandi vill í staðinn.
  7. Ef greitt var með netgíró þarf að taka það fram; senda kennitölu og einnig kröfunúmer er nauðsyn svo hægt sé að bakfæra.

Sé nánari upplýsinga þörf mun seljandi hafa samband við kaupanda.

Skil jólagjafa er til 31.desember.

Vilji kaupandi skipta vörunni í aðra vöru sem er til á lager er jafnframt hægt að óska eftir nýrri sendingu. Kostnaður við endursendingu og nýja sendingu vöru vegna skipta á ógallaðri vöru er á ábyrgð og kostnað viðskiptavinar. Ef viðskiptavinur endursendir og skilar vöru án þess að greiða fyrir sendingarkostnaðinn verður hann dreginn frá keyptri upphæð.

Skilyrði er að skrá pakkann svo hann týnist ekki hjá Póstinum. Ef pakki týnist sem sendur var til baka, þá er það á ábyrgð kaupanda.

Vöru sem keypt er á útsölu/afslætti/outlet fæst hvorki skilað né skipt. 

Eignarréttarfyrirvari

Seldar vörur eru eign seljanda þar til kaupandi hefur greitt kaupverðið að fullu.

Trúnaður

Seljandi heitir viðskiptavinum fullum trúnaði um allar upplýsingar sem þeir gefa upp í tengslum við viðskiptin. Um meðferð persónuupplýsinga við viðskiptin fer samkvæmt lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.

Lagaákvæði

Um skilmála þessa gilda lög um lausafjárkaup nr. 50/2000 sem og lög um neytendakaup nr. 48/2003, eftir því sem við getur átt.

Ágreiningur

Rísi ágreiningur um viðskiptin sem verður ekki leystur með öðrum hætti en aðkomu dómstóla skal mál rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

Persónulegar upplýsingar sem við fáum frá þér

Þegar þú pantar vöru í vefverslun M Fitness söfnum við einungis upplýsingum sem þú skráir, eins og nafn þitt, netfang, heimilisfang og síma. Með því að panta vöru og skrá upplýsingar þá heimilar þú slíka söfnun upplýsinga. Sama gildir ef þú skráir þig sem viðskiptavin.

Upplýsingar um kreditkortið þitt eru aðeins vistaðar á meðan viðskiptin fara fram og eru samþykkt í kerfinu. Valitor geymir kortaupplýsingar þínar í öruggum kerfum sínum, en ekki á greiðslusíðunni sjálfri.

Um leið og pöntunin er staðfest og þú færð staðfestinguna í hendur verður öllum upplýsingum um kortið eytt úr kerfinu. Kortaupplýsingar þínar eru öruggar á meðan ferlinu stendur. Hið sama gildir hvort sem þú ert skráður notandi eða ekki.

Fyrir frekari upplýsingar um öruggi greiðslu þinnar vísum við á heimasíðu Straums.

Hvað með vafrakökur (cookies)?

"Cookies“ eða vafrakökur eru upplýsingar sem vefforritið þitt geymir í tölvunni þinni að beiðni netþjóna. M Fitness notar þessar upplýsingar til að vita hversu oft þú heimsækir heimasíðuna, hvað þú setur í körfuna þína, hvernig fyrri pantanir þínar voru og til að kynna þig fyrir vörum sem gætu vakið áhuga þinn.

Vafrakökurnar eru hannaðar til að þjóna þínum þörfum og þú ættir ekki að hafa áhyggjur af þeim.

Flestir vafrar eru stilltir þannig að þeir taka sjálfvirkt við vafrakökum en hægt er að stilla þá þannig að notandinn þurfi að samþykkja hvert tilvik. Enda þótt þú kjósir að leyfa ekki vafrakökur geturðu samt sem áður notað flest alla hluta vefsíðu okkar, þar á meðal verslunarkerfið.

Með því að nota vefsíðu M Fitness samþykkir þú notkun á vafrakökum.

Nánari upplýsingar

Ef þú þarft nánari upplýsingar eða vilt koma að ábendingum eða kvörtunum, sendu okkur þá fyrirspurn á mfitness@mfitness.is og við svörum þér eins fljótt og auðið er.

Gildistími

Skilmálar þessir gilda frá 1. janúar 2021.