✨ Embody Collection ✨
Fatalínan þar sem hreyfing, vellíðan og mýkt mætast.
Á bakvið hverja flík er sú hugsun að gera vel við líkamann.
Embody línan er hönnuð með það í huga að gefa þér sjálfstraust til þess að hreyfa þig á þann hátt sem lætur þér líða vel. Við vonum að Embody hjálpi þér að finna styrkinn þinn, halda í mýktina en á sama tíma stíga inn í kraftinn og vera þú sjálf á alla vegu.
Með hreyfingu, teygjum, öndun & núvitund styrkjum við tengsl okkar við líkamann og hjálpum honum að koma okkur sem lengst í lífinu.
Og til þess þurfum við að geta hreyft okkur óhindrað & í þægilegum fatnaði.
Embody Collection flíkurnar halda utan um þig í hverju skrefi - mjúkar, styrkjandi og þægilegar.